Romans 12

1Því brýni ég yður, bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi. 2Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna. 3Fyrir þá náð, sem mér er gefin, segi ég yður hverjum og einum að hugsa ekki hærra um sig en hugsa ber, heldur í réttu hófi, og halda sér hver og einn við þann mæli trúar, sem Guð hefur úthlutað honum. 4Vér höfum á einum líkama marga limi, en limirnir hafa ekki allir sama starfa. 5Eins erum vér, þótt margir séum, einn líkami í Kristi, en hver um sig annars limir. 6Vér höfum margvíslegar náðargjafir, eftir þeirri náð, sem oss er gefin. Sé það spádómsgáfa, þá notum hana í hlutfalli við trúna. 7Sé það þjónusta, skulum vér þjóna. Sá sem kennir, hann kenni, 8sá sem áminnir, hann áminni. Sá sem útbýtir gjöfum, gjöri það í einlægni. Sá sem veitir forstöðu, sé kostgæfinn og sá sem iðkar miskunnsemi, gjöri það með gleði. 9Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða. 10Sýnið hver öðrum bróðurkærleika og ástúð, og verið hver yðar fyrri til að veita öðrum virðing. 11Verið ekki hálfvolgir í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni. 12Verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni og staðfastir í bæninni. 13Takið þátt í þörfum heilagra, stundið gestrisni. 14Blessið þá, er ofsækja yður, blessið þá, en bölvið þeim ekki. 15Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. 16Berið sama hug til allra, hreykið yður ekki, en haldið yður að hinum lítilmótlegu. Ætlið yður ekki hyggna með sjálfum yður. 17Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna. 18Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á yðar valdi. 19Hefnið yðar ekki sjálfir, þér elskaðir, heldur lofið hinni refsandi reiði Guðs að komast að, því að ritað er: ,,Mín er hefndin, ég mun endurgjalda, segir Drottinn.`` 20En ,,ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta, ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka. Með því að gjöra þetta, safnar þú glóðum elds á höfuð honum.`` 21Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu.
Copyright information for Icelandic